Í húsi Island Studios hefur dunið ómur lifandi tónlistar í rúm 80 ár, eða frá því að það var byggt árið 1926. Þetta var fyrsta kirkja hvítasunnumanna og voru þeir með starfsemi sína þar til ársins 1995. Eftir það varð húsnæðið að leikskóla en féll í hendur Island Studios árið 2007.

Island Studios býður upp á alla þá möguleika sem gott hljóðver á að hafa upp að bjóða. Þar er að finna 115 m² upptökusvæði inní 450m2 húsi, upptökusal, 3 upptökuherbergi, stórt stjórnherbergi og svo 2 afslöppunarsvæði.  Einnig er afar hugguleg íbúð á hæðinni fyrir ofan sem tónlistarmönnum býðst að dvelja meðan á upptökum stendur. Nýlega hafa staðið yfir mikklar breitingar í studioinu og er húsið farið að bjóða uppá yndislega möguleika. Nýtt Baðherbergi, nýtt vinnuherbergi, nýtt afslöppunarherbergi og einnig nýtt svefnherbergi 

 

Af öllu sögðu er Island Studios kjörið hljóðver fyrir þá sem vilja taka upp sína tónlist í fögru umhverfi frá allri streitu og stressi, með topp græjur og fagmenn að verki. Það er okkar metnaður að bjóða upp á alla þá þjónustu sem til þarf til að þitt verkefni nái hámarks útkomu